Mikilvæg lesning
Umsóknir frá fyrirtækjum í nóv. og des. 2025
Umsóknir fyrirtækja verða að berast sjóðunum fyrir 10. desember 2025 svo afgreiðsla þeirra náist fyrir áramót og réttur fyrirtækis fyrir árið 2025 nýtist.
Þær umsóknir sem berast eftir þá dagsetningu geta mögulega færst yfir á rétt fyrirtækis 2026 við afgreiðslu á umsókn.
Lítið brot fyrirtækja fullnýtir árlegan hámarksrétt
Sjóðirnir benda hins vegar á að lítið brot fyrirtækja fullnýtir hámarksrétt sinn í sjóðina á almanaksári. Fyrirtæki þurfa eingöngu að passa að reikningar verði ekki eldri en 12 mánaða þegar umsókn er send inn. Árlegur réttur fyrirtækja í sjóðina sem standa að Áttinni er misjafn eftir sjóðum en allir sjóðirnir horfa til úgáfudags reiknings þar sem reikningar mega vera allt að 12 mánaða gamlir.
Reikningar allt að 12 mánaða
Sjóðirnir hvetja því þau fyrirtæki, sem ekki fullnýta rétt sinn, til að fara sér að engu óðslega hvað þetta varðar, taka sér tíma í umsóknirnar og vanda vel til verka. Styrkur er ekki glataður ef umsókn næst ekki fyrir áramót eða innan almanaksársins. Styrkur er aðeins glataður ef reikningur er eldri en 12 mánaða þegar sótt er um styrk í sjóðina.
Vanda til verka – skila umbeðnum gögnum með umsókn
Að síðustu er mikilvægt að hafa í huga að öll gögn fylgi með umsókn um styrk svo afgreiðsla sjóða gangi snurðulaust fyrir sig.
Sjóðirnir hvetja fyrirtæki að sækja um jafnt og þétt yfir árið til að koma í veg fyrir óþarfa spennu í lok árs.