Auðveldari leið fyrir fyrirtæki til að sækja um styrki til starfsmenntunar

Áttin er vefgátt, sem greiðir leið fyrirtækja að umsóknum að starfsmenntasjóðum og fræðslusetrum. Engir styrkir eru afgreiddir af Áttinni heldur afgreiða þeir sjóðir sem tengjast viðkomandi umsókn styrki eftir sínum reglum. Áttin er sameiginlegt verkefni atvinnurekenda og launafólks á almennum vinnumarkaði.

Fyrirtæki innan Samtaka atvinnulífsins og Félags atvinnurekenda geta nú sótt um í marga fræðslu- og starfsmenntasjóði með einni umsókn. Umsóknarferlið er einfalt í notkun og býður upp á þann valmöguleika að tengja eina umsókn við marga sjóði fyrir þau fyrirtæki þar sem starfsmannahópurinn er fjölbreyttur og greitt er af í mismunandi stéttarfélög.

Sjóðirnir sem standa að Áttinni eru IÐAN fræðslusetur, Landsmennt, Menntasjóður STF, Rafmennt, Starfsafl, Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks og Starfsmenntasjóður verslunarinnar og Sjómennt. Ætla má að sjóðirnir nái til um 110-120 þúsund starfsfólks á almenna vinnumarkaðinum eða um 75-80% starfsfólks á þeim vinnumarkaði.

Öflug persónuvernd er starfsmenntasjóðunum mikilvæg og er lagt upp með að meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi regluverk á hverjum tíma, sem og í samræmi við bestu venjur sambærilegra aðila. Sjá nánar um persónuvernd Starfsmenntasjóðs- verslunar- og skrifstofufólks.

Áttin er sífellt í þróun. Fyrirtæki eru hvött til að kynna sér Áttina og senda ábendingar og fyrirspurnir á attin@attin.is