5 Hugmyndir að spurningum
í rafræna könnun
Rafræn könnun samhliða rýnihópavinnu í Fræðslustjóra að láni verkefnum á vegum sjóðanna
Markmið: styðja við rýnihópavinnunna innan fyrirtækisins með enn meiri hlutdeild starfsfólks þar sem fleiri fá tækifæri til að leggja sitt inn í vinnuna.
Fyrirtækjum er frjálst að nýta hvaða könnunartól sem er – skoða alltaf hvort og hvernig Kanni myndi nýtast fyrirtækjum. Ráðgjafi skoðar slíkt með fyrirtæki
Kanni – Google forms – Surveymonkey – Mentimeter eða önnur könnunartól
Hægt að styðjast við eftirfarandi flokkun og aðlaga spurningar að fyrirtækjum
_______________________________________________________________________________________
Grunnupplýsingar og annað: Hægt að hafa nafn ef vill, starfstöð eða deild
- Tókstu þátt í rýnihópnum? (Já/nei)
- Hversu vel þekkir þú til þeirra fræðslustyrkja sem í boði eru? (hvort sem eru frá stéttarfélaginu/ sjóðum eða fyrirtækinu ? (skali 1-5)
- Hvernig sérðu fyrir þér afrakstur/ hagnað af fræðslunni gagnvart þér sjálfri/sjálfum? (opin spurning)
- Hvernig telur þú aukna fræðslu innan fyrirtækis koma þér að gagni, hverju telur þú það skila þér? (opin spurning)
- Hversu hlynnt/ur ertu skyldufræðslu á vegum atvinnurekenda? (skali 1-5)
- Hvernig telur þú best að auka þekkingu og fræðslu innan þíns vinnustaðar? (opin spurning)
- Hversu mikilvægt telur þú tengingu aukinnar hæfni í starfi/ fræðsla við laun? (opin spurning)
- Hvað vilt þú fá út úr aukinni fræðslu á vinnustað? Svarmöguleikar: Hækkun launa – Meiri ábyrgð á verkefnum – Starfsöryggi – Skemmtun – Aukin réttindi/einingar _______________________________________________________________________________________
Fræðsluflokkar:
- Hvaða fræðslu sækist þú eftir til að efla þig í starfi? Svarmöguleikar: Þjónusta innri/ytri – Kerfi/ hugbúnaður sem fyrirtækið vinnur – Fagþekking, fagþjálfun sem dýpkar sérfræðiþekkingu mína – Samskiptafærni- Stjórnun- Ferlar og vinnuflæði-Gæðamál- Öryggismál – Lögbundin fræðsla miðað við rekstur
- Hvers konar fræðslu telur þú mikilvæga fyrir vinnustaðinn? Svarmöguleikar: Fræðsla um: Samskipti – fagþekkingu, öryggisfræðsla, stafræn hæfniaukning í starfi (má velja margar möguleika)
- Er eitthvað sem þú vilt koma á framfæri í tengslum við fræðslu? (opin spurning)
- Ertu með hugmyndir að fræðslu sem þú vilt koma á framfæri? (opin spurning)
_______________________________________________________________________________________
Skipulag fræðslu – tímasetningar, staðsetningar
- Hvaða tíma dags telur þú best að stunda þína fræðslu? Svarmöguleikar: Fyrir opnun – Fyrir hádegi í upphafi dags – eftir hádegi – hentar ekki að sækja fræðslu á vinnutíma/ eftir vinnutíma – eftir klukkan 15 á daginn
- Hversu vel á það við um þig að sækja fræðslu stafrænt, þ.e. að þú ráðstafir tíma þínum í fræðslu þegar þér hentar. Svarmöguleikar: Á vel við mig – ekki vel við mig, og þá hvernig…….
_______________________________________________________________________________________
Form fræðslu – staðnám, stafrænt, rafrænt
- Hvaða fullyrðing lýsir best hvernig þú kýst að sækja fræðslu? Svarmöguleikar:
Mér finnst best að sækja fræðslu kennda á vinnustaðnum með samstarfsfólki
Mér finnst best að fara út úr húsi til að sækja fræðsluna en þó með mínu samstarfsfólki
Mér finnst best að sækja fræðslu út úr húsi í blönduðum bekk
Ég kýs að sæka mína fræðslu í fjarnámi á þeim tíma sem hentar mér
- Hvers konar form/ framsetning hentar þér best varðandi fræðslu? Svarmöguleikar: Staðnám – stafræn fræðsla (ræð hvenær ég stunda fræðsluna) – rafrænt (ákv.tími skilgreindur t.d. gegnum Teams) – sambland af öllu hér að ofan